Hoppa yfir valmynd
17. maí 2024 Forsætisráðuneytið

Konráð S. Guðjónsson ráðinn efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar

Konráð S. Guðjónsson - mynd

Konráð S. Guðjónsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður ríkisstjórnar og mun bera starfstitilinn efnahagsráðgjafi ríkisstjórnar.

Konráð er hagfræðingur með B.Sc. gráðu frá Háskóla Íslands og M.Sc. frá Warwick-háskóla. Hann hefur verið aðstoðarmaður utanríkisráðherra og þar áður fjármála- og efnahagsráðherra frá því í nóvember sl. Áður starfaði Konráð m.a. sem aðalhagfræðingur Arion banka, hagfræðingur og aðstoðarframkvæmdastjóri Viðskiptaráðs og tímabundið sem efnahagsráðgjafi Samtaka atvinnulífsins. Þá hefur hann sinnt kennslu við Háskóla Íslands, starfað hjá Hagfræðistofnun og við þróunarsamvinnu í Úganda og Tansaníu.

Aðstoðarmenn ríkisstjórnar eru nú þrír líkt og áður en auk Konráðs eru það Dagný Jónsdóttir og Anna Lísa Björnsdóttir. Þær breytingar verða nú að Áslaug María Friðriksdóttir verður aðstoðarmaður forsætisráðherra ásamt Hersi Aroni Ólafssyni en áður starfaði hún sem aðstoðarmaður ríkisstjórnar.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum